Þriðjudagur 30. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Caroline Wanjiku Mwangi elskar íslenska veturinn: „Var krýnd Ungfrú Beauty Point Naíróbí árið 2016

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Caroline Wanjiku Mwangi, förðunarfræðingur frá Kenía, ólst upp á sveitabæ í heimalandi sínu. Hún kynntist fyrir nokkrum árum Unnsteini S. Jóhannssyni, bónda á Laxárholti. Þar búa hjónin dag ásamt syni hennar. Caroline segir í viðtali við Kolbein Þorsteinsson að sig dreymi um að taka bílpróf og fá vinnu hér á landi.

 

„Ég ólst upp á bóndabæ í Kenía. Við vorum með kýr og var farið með þær í skóginn á hverjum morgni; það verð einhver að fara með þær á morgnana og svo var komið með þær á kvöldin. Hér komst ég að því að kýrnar eru lokaðar inni. Í Kenía mjólkum við kýrnar en hérna eru notaðir róbótar,“ segir Caroline Wanjiku Mwangi frá Kenía sem er gift Unnsteini S. Jóhannssyni, bónda á Laxárholti. Hún flutti til landsins í mars. „Ég hef sinnt bústörfum hérna og þetta er auðveldara en í Kenía. Mér finnst þetta vera áhugavert. Hérna gerir maður ekkert með höndunum; það eru aðallega notaðar vélar.“

Caroline segist vilja læra að aka traktor og hjálpa manni sínum í öllu.

Fólk slóst. Fólk stal.

Caroline talar um þjóðfélagið þar sem hún ólst upp. „Fólk slóst. Fólk stal. Þetta er eðlilegt í Kenía. Það verður að loka hliðunum og vera með stóra hunda úti. Ég er að reyna að aðlagast. Ég hef spurt Steina um ef einhver færi að slást við hann í Reykjavík og hann hefur sagt að enginn færi að slást við sig af engu tilefni. Meirihluti fólks er góður. Það sýnir mér að Ísland er mjög friðsælt land og ég er að reyna að aðlagast. Ég hef séð að íslenskir lögreglumenn eru ekki vopnaðir. Lögreglan er út um allt í Kenía og hún er vopnuð. Steini hefur sagt mér að hér sé enginn her en það er her í Kenía. Þetta gerir Ísland áhugavert.“

Í viðtali sem Kolbeinn hafði áður tekið við hjónin kemur fram að Caroline er af Kikuyu-ættbálki og hafi lokið námi í Naíróbí, gerst förðunarfræðingur og hafið eigin atvinnurekstur í því fagi og hafi einnig starfað sem fyrirsæta. Þar segir að hún hafi verið krýnd Ungfrú Beauty Point Naíróbí árið 2015.

- Auglýsing -

 

Fékk ekki heimsóknarleyfi

Caroline segist ekkert hafa vitað um Ísland áður en hún kynntist eiginmanni sínum. „Ég fór að lesa mér til um Ísland eftir að við kynntumst. Mér fannst þetta vera fallegt land og hafði áhuga á að setjast hér að sérstaklega út af fjöllunum og ég elska veturna. Mér finnst veturinn vera svo heillandi.“

- Auglýsing -

Það tók Caroline langan tíma að komast til Íslands.

„Það tók um sex mánuði. Við höfðum reynt áður og sótt um heimsóknarleyfi en það gekk ekki.“

Það er mjög erfitt fyrir okkur Afríkubúa að fá vegabréfsáritun til að komast til Evópu.

Hún segist hafa orðið mjög leið þegar þetta gekk ekki. „Ég hélt þá að sambandið myndi ekki ganga en Steini er mjög ákveðinn maður og hann sagði að við skyldum ekki gefast upp og skyldum nýta okkur annan valmöguleika sem var að ganga í hjónaband. Það er mjög erfitt fyrir okkur Afríkubúa að fá vegabréfsáritun til að komast til Evópu. Þeir eru mjög strangir gagnvart Afríkubúum. En ég fékk svo dvalarleyfi eftir að við giftum okkur. Ég á marga vini sem hafa reynt að komast til Íslands með því að sækja um heimsóknarleyfi og þeim hefur verið neitað um það. Þannig að það að ganga í hjónaband er eini möguleikinn til að komast til Íslands.“

Caroline segist ekki hafa trúað því þegar leyfið var í höfn. „Við vorum svo hamingjusöm.“

 

Menningarsjokk

Caroline kom til landsins ásamt ungum syni sínum í mars. Hvernig var tilfinningin?

„Þetta var eins og að vera í draumalandi. Mér fannst þetta ekki vera raunverulegt. Ég hafði aldrei áður farið til annars lands og ég hafði tækifæri til að koma til Íslands með syni mínum. Allt var svo frábrugðið. Kuldinn helltist yfir mig.“ Hún talar um fegurð landsins. Þögnina. Hreinleikann. Fjöllin.

Ég fékk þó mikið menningarsjokk.

„Maðurinn minn beið eftir mér á flugvellinum með blómvönd og hann var mjög spenntur. Þetta var draumi líkast. Mér finnst ég ennþá vera í draumi vegna þess að allt er svo nýtt svo sem fólkið og veðrið. Ég fékk þó mikið menningarsjokk.“

Áður hafði verið minnst á glæpi í Kenía og að fólk sé með hlið við hús og stóra hunda fyrir utan. Caroline segist vera hissa á að fólk sé ekki með hlið við hús sín hér á landi.

 

Heimþrá

Caroline segist vera ánægð á Íslandi. „Ég hef ekki hitt neinn sem hefur verið með kynþáttafordóma eða einhvern sem hefur komið illa fram við mig. Mér finnst allir hérna vera mjög elskulegir.“

Ég grét.

Hún fékk þó heimþrá eftir að hún flutti til Íslands. „Ég saknaði matar í Kenía. Ég sagði við Steina að hann ætti að kaupa flugmiða fyrir mig og ég yrði heima allavega í tvo til þrjá mánuði en að ég kæmi aftur. Ég grét. Ég hringdi í mömmu og sagði að ég yrði að koma heim en hún sagði að ég yrði að vera hérna. Núna líður mér vel. Ég talaði einhvern tímann um það við Steina hvort ég hafi virkilega beðið hann um að kaupa flugmiða fyrir mig til Kenía. Ég er að aðlagast.“

Caroline segir að engin vandamál hafi komið upp í tengslum við ungan son hennar. „Hann leikur að dótinu sínu og horfir á teiknimyndir. Það er ekkert sem truflar hann. Ég sé þó að hann saknar félagsskapar annarra barna og hann verður mjög spenntur þegar hann sér önnur börn. Það var leiðinlegt að hann gat ekki farið strax í leikskóla og það þarf að bíða. Þess þarf ekki í Kenía; það er jafnvel hægt að mæta með barn í leikskóla daginn eftir.“

Caroline talar um að sonur sinni fái stundum ís sem hann var ekki vanur í Kenía. „Ég kom með mikið af lyfjum frá Kenía svo sem flensulyf og ég hef sagt við Steina að vera ekki að gefa syni mínum ís af því að ég sé hrædd um að hann fái þá flensu. En hann borðar ís og er í lagi. Þegar Steini er ekki í húsinu set ég þrjár flöskur með heitu vatni í í rúmið okkar. Mér finnst vera svo kalt. En ég er að venjast þessu.“

 

Vill vera útivinnandi

Caroline talaði um hve erfitt sé fyrir Afríkubúa að fá heimsóknarleyfi en hún segir að kannski geti hún boðið foreldrum sínum einhvern tímann í heimsókn. Hún talar um hve fjölskylda sín sé áhugasöm um lífið á Íslandi og hafa þau meðal annars beðið hana um að senda sér myndbönd af kúnum á bænum.

Sem betur fer hefur hann hingað til verið yndislegur eiginmaður.

„Við erum sjö í fjölskyldunni og allir eru að biðja um myndband. Þau höfðu áhyggjur; hvernig maður Steini væri og ef hann færi illa með mig þá væri ég svo langt í burtu frá þeim og hvað gætu þau þá gert. Sem betur fer hefur hann hingað til verið yndislegur eiginmaður. Það hefur ekkert vandamál komið upp og hann hefur stutt mig mikið. Ég brotna stundum saman þar sem ég er langt að heiman. Steini gerir svo mikið til að hjálpa mér að aðlagast sem og syni mínum og gera okkur lífið auðvelt.“

Caroline elskar Unnstein og hún segir að það sem hún elski við Ísland sé að fólk hafi tækifæri til að vinna. Hana dreymir um að taka bílpróf og fá vinnu hér á landi. „Það eru ekki tækifæri í Kenía. Ég get ekki byrjað eftir að vinna. En hann segir að ég eigi að vinna heima.“

 

Kynntu þér nýjasta tölublað Mannlífs

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -