Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir ýmsa vankanta á útlendingalögum hér á Íslandi, og telur að það þurfi að ganga enn lengra við aðstæður þær sem hann telur vera slæmar fyrir Ísland og Íslendinga; Jón mun kynna ríkisstjórninni grein fyrir tillögum í þá veru mjög fljótlega.
Dómsmálaráðherra er á því að móttökukerfið sem er fyrir flóttamenn á Íslandi sé alltof opið:
„Það eru seglar í lagaumhverfi okkar sem gera það að verkum að vandinn er eins mikill og raun ber vitni,“ en þetta sagði Jón í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi.
Stutt er síðan ríkislögreglustjóri hækkaði viðbúnaðarstig sitt vegna fjölda hælisleitanda hér á landi; í byrjun mánaðarins var svo opnuð fjöldahjálparmiðstöð í Borgartúni í Reykjavík þar sem allir umsækjendur um alþjóðlega vernd geta komið og leitað sér aðstoðar.
Rúmlega 2.500 manns hafa sótt um vernd hér á Íslandi á þessu ári; hafa aldrei verið fleiri umsækjendur á svo stuttum tíma.
Jón dómsmálaráðherra var spurður út í stöðu mála í þessum málaflokki á Alþingi, og sagði hann vandann vera hlutfallslega mestan á Íslandi miðað við nágrannaþjóðir okkar í Evrópu sem við viljum láta bera okkur saman við. Hann sagði að fólk væri að misnota flóttamannakerfið á Íslandi og þar með brjóta flóttamannasáttmála Sameinuðu þjóðanna:
„Það stendur öllum opið sem á það vilja horfa með opnum augum. Held það sé of langt mál að fara nánar út í það. Þetta liggur í tímafrestum; liggur líka í því hvernig við tökum á móti fólki og úti í samfélaginu; hvernig þetta snýr að því fólki sem er með tilhæfulausar umsóknir: Hvernig við sendum það til baka og hvernig unnið er að þeim málum.“
Og Jón vill ekki slaka á klónni – þvertá móti – hann vill herða útlendingalöggjöfina „og ég mun gera ríkisstjórninni grein fyrir tillögum í þá átt á næstunni.“