Gísli Garðarsson, fyrrverandi varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður fyrir Vinstri Græna, ætlar að fara í sjálfskipaða útlegð frá Twitter.
Gísli er afar ósáttur við að ríkasti maður heims, Elon Musk sé búinn að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter. Birti hann eftirfarandi færslu:
jæja þá er þetta búið. https://t.co/zFIVUDyxNh
— Gísli Garðars (@gisligardars) October 28, 2022
Í athugasemdum við færsluna tilkynnir hann að hann ætli að hætta á Twitter:
„ég mun sjálfur líklega óvirkja eða eyða aðganginum mínum síðar í dag. ég þakka ykkur sem ég hef kynnst hér bara fyrir samfylgdina síðustu 8 ár og við sjáumst einhvers staðar annars staðar síðar!“
Í annarri athugasemd útskýrði hann af hverju hann ætlaði sér í sjálfskipaða útlegð:
„sögur um að hann ætli að reka 75% starfsmanna fyrirtækisins eru „ónákvæmar“ því hann hefur „aðeins“ í huga að reka 50% þeirra. þetta er óþverrastefna og ömurlegir viðskiptahættir í eins miklum mæli og hægt er, gagngert í þeim tilgangi að gefa bandarískum öfgahægrimönnum platform.“