Gríðarleg aukning hefur orðið á notkun megrunarlyfja sem fyrst komu á markað hér á landi árið 2018. Fréttablaðið fjallaði um málið í morgun en á síðustu fjórum árum hefur notkunin nær tífaldast. Lyfin sem um ræðir nefnast Saxenda, Ozempic og Viscosa. Þá kemur fram að nærri níu þúsund manns hafi fengið ávísun upp á lyfin á síðasta ári.
Lyfunum er sprautað í kvið, læri eða upphandlegg og hafa þau áhrif á matarlyst. Algengar aukaverkanir lyfsins geta verið ógleði og uppköst og getur lyfið orðið til þess að notendur fái gallsteina. Erlendir miðlar hafa einnig fjallað um lyfin en sagði læknirinn Paul Jarrod Frank í samtali við New York Times að hann muni ekki eftir álíka umtali um lyf síðan að Viagra kom á markað.