Snjóflóð féll í Neskaupstað í nótt en verið er að rýma tugi húsa á svæðinu. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, sagði í samtali við RÚV í morgun að snjóflóðið hafi ekki verið þykkt en ljóst er að það hafi fallið á miklum hraða. „Við virðumst hafa sloppið vel, sem betur fer,“ sagði Víðir en aðstæður á svæðinu eru erfiðar. Snjóflóðahætta er á öllu Austurlandi en auk þess er verið að rýma á Seyðisfirði. Mannlífi bárust myndir frá Eskifirði þar sem má sjá fannfergjuna.
„Við komumst ekki lengra út í bili, en förum þegar það er búið að moka aðeins,“ segir Hrefna Sigríður Reynisdóttir, íbúi á Eskifirði. „Það er allt lokað, sýslumaður, skólinn, heilsugæslan – Sú sem er með búðina er að vinna í að moka sig út.“
Fólk vinnur hörðum höndum við að moka snjóinn
Hér má sjá glitta í bíl
Gönguleið að húsi Hrefnu
Tveir bílar við húsið hafa snjóað í kaf.