Jón Gnarr er fyndinn maður, það vita allir. Litlu munaði að þessi ástsæli grínisti léti lífið í gær við það að borða páskaegg.
Grínistinn, útvarpsmaðurinn, rithöfundurinn og ég veit ekki hvað og hvað, Jón Gnarr, skrifaði spaugilega færslu á Twitter þar sem hann sagði frá því að hann hafi næstum því kafnað á málshætti þegar hann tróð í sig brotum úr litlu páskaeggi.
„eitt brotið lítið páskaegg eftir. sturtaði því í lófann og gúffaði brotunum uppí mig. var næstum kafnaður á helvítis málshættinum. sundlaði og sá fyrir mér fréttina: Nói Síríus biðst afsökunar à því að hafa drepið Jón Gnarr“
En hver var svo málshátturinn?
„Þegar á tekur, taka sumir á“
eitt brotið lítið páskaegg eftir. sturtaði því í lófann og gúffaði brotunum uppí mig. var næstum kafnaður á helvítis málshættinum. sundlaði og sá fyrir mér fréttina: Nói Síríus biðst afsökunar à því að hafa drepið Jón Gnarr pic.twitter.com/tQ3ePnyIBe
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) April 12, 2023