Þriðjudagur 30. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Eign í Vesturbænum á 15,9 milljónir – MYNDIR

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fasteignamarkaðurinn og -auglýsingar er ekki nýtt fréttaefni en nú er auglýst eign í einu vinsælasta hverfi höfuðborgarinnar á litlar 15,9 milljónir.

Um ræðir tvö sérstæð kjallaraherbergi í íbúðablokk á Birkimel í Vesturbænum með sameiginlegum nýtingarrétti á snyrtingu. Samkvæmt fasteignaauglýsingunni telja herbergin samanlagða 16,1 fermetra og tilheyrðu þau áður íbúð á efri hæð blokkarinnar. Fermetraverðið er rétt undir milljón. Herbergjunum fylgir hlutdeild í sameigin blokkarinnar og eru meðal annars tilgreindar tröppur sem ekki eru gefin frekari skil á. Herbergin eru ekki samþykkt svo ekki er möguleiki á íbúðaláni til kaupanna.

Í lok lýsingarinnar, sem er ansi nákvæm og langyrt, er bent á að mikil eftirspurn sé á leigumarkaði eftir íbúðarherbergjum sem þessum. Eftir létta eftirgrennslan blaðamanns Mannlífs má finna sambærileg herbergi til leigu fyrir 100 þúsund krónur á mánuði. Svo lausreiknað væri eiginin búin að standa undir sér á rétt tæpum sjö árum.

Snyrtingin er skilgreind sem sameign allra Mynd/skjáskot af fasteignavef Vísis.
Mynd/skjáskot af fasteignavef Vísis.
Herbergin eru staðsett í kjallara Birkimels 10a Mynd/skjáskot af fasteignavef Vísis.
Herbergi með útsýni út á bílastæði. Mynd/skjáskot af fasteignavef Vísis.
Skápur fylgir öðru herbergjanna. Mynd/skjáskot af fasteignavef Vísis.
Teppalagða herbergið. Mynd/skjáskot af fasteignavef Vísis.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -