Þriðjudagur 30. apríl, 2024
5.8 C
Reykjavik

Öflug heimagerð sprengja veldur milljónatjóni í Múlagöngum: „Óskiljanlegt hvað fólki gengur til“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Mikill viðbúnaður var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í vikunni í kjölfar þess að heimagerð sprengja var sprengd í Ólafsfjarðargöngum.
Bergur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi-eystra segir að hér sé um stærstu heimatilbúnu sprengju sem hafi sprungið í skemmdartilgangi hér á landi. „Nú liggur fyrir að gera mat á hversu mikil almannahætta var á ferð. Sem betur fer sprakk hún að nóttu til þegar umferð var lítil sem engin. Vegagerðin metur tjónið hlaupa á milljónum það er óskiljanlegt hvað fólki gengur til.“
Í fréttatillkynningu lögreglu segir: „Tjón af völdum sprengingarinnar er talið nema milljónum króna og orsakaði meðal annars ljósleysi í Ólafsfjarðargöngum. Málið er litið alvarlegum augum. Lögreglan naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og sprengjusérfræðinga hennar við framkvæmdir á húsleitum á Ólafsfirði á miðvikudag.
Fjórir voru handteknir vegna málsins bæði í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Aðgerðirnar voru hluti af rannsókn lögreglunnar á athæfi sem hefur í för með sér almannahættu. Málsatvik liggja að mestu fyrir eftir skýrslutökur hjá lögreglunni á Akureyri og á Suðurnesjum en frekari rannsókn stendur yfir. Fólkinu sem allt er á fertugs- og fimmtugsaldri hefur verið sleppt úr haldi lögreglu.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -