Fimmtudagur 16. maí, 2024
6.8 C
Reykjavik

Alvarleg líkamsárás í Úlfarsárdal nú undir morgun

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglu barst tilkynning rétt fyrir klukkan fimm í morgun um alvarlega líkamsárás í Úlfarsárdal. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort einhver hafi verið fluttur á slysadeild en málið er í rannsókn. Það var klukan hálf tíu í gærkvöldi sem lögreglu barst tilkynning um líkamsárás. Tveir voru handteknir en þolandi slasaðist lítillega.

Í miðborginni voru fjórir menn handteknir vegna húsbrots, allir gistu í fangaklefa. Í Breiðholti var lögregla einnig kölluð út vegna húsbrots og þó nokkuð mikið var um tilkynningar vegna fólks í annarlegu ástandi. Í miðbænum datt maður og slasaði sig á höfði. Hann var  fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku til aðhlynningar. Þá sinnti lögregla einnig reglubundnu umferðareftirliti en samkvæmt dagbók lögreglu var nóttin heldur annasöm.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -