Skrifstofustjóri skrifstofu forseta Íslands segir embættið ekki kannast við vínstuld á Bessastöðum. Segir mann sem uppvís varð af kynferðislegu áreiti í vinnu- og námsferð starfsmanna hafa fengið áminningu.
Skrifstofustjóri skrifstofu forseta Íslands, Árni Sigurjónsson, segir í svari við spurningum Mannlífs, að ekki sé embættinu kunnugt um að áfengi hafi horfið úr vínkjallara embættisins en lögfræðingurinn Sigurður G. Guðjónsson hélt því fram nýverið.
Einnig segir í svarinu að forsetaritari embættisins hafi tekið á kynferðislegu áreiti innan starfsmannahóps forsetans og veitt gerandanum áminningu í samræmi við 21. grein starfsmannalaga ((nr. 70/1996, https://www.althingi.is/lagas/
Skrifstofustjórinn sagði ennfremur að embætti forseta Íslands hafi ekki greitt neinar fébætur í sambandi við umrætt atvik. Var forseti upplýstur um málið en þann 4. október 2019 birti hann yfirlýsingu um málið á heimasíðu forsetaembættisins; (https://www.forseti.is/media/