Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, óttast að bakslag komi í baráttunni við COVID líkt og öll fyrri skipti sem upplýsingafundum hefur verið fækkað. Þetta ætti hann að hafa á hreinu enda þekktur fyrir spurningar sínar á upplýsingafundum.
Í dag var tilkynnt að upplýsingarfundir yrðu vikulegir en ekki daglegir. Björn Ingi biðlar því til Íslendinga að fara varlega næstu daga, svo sagan endur taki sig ekki.
„Nú á sunnudaginn er akkúrat ár frá því að fyrsta COVID tilfellið greindist á Íslandi. Það gengur auðvitað mjög vel, langt síðan hefur fundist smit utan sóttkvíar í samfélaginu. Þess vegna er búið að taka ákvörðun um að fækka upplýsingafundum niður í einn á viku. Þeir verða framvegis á fimmtudögum,“ segir Björn Ingi í myndbandi á Facebook.
„Að þessu tilefni langar mig til að hvetja íslensku þjóðina til að fara mjög varlega næstu daga, því þetta er í fjórða sinn sem að ákvörðun er tekin á þessu eina ári um að fækka fundum. Í öll skiptin hefur orðið alvarlegt bakslag strax á eftir. Þannig að nú kemur í ljós hvort þetta er óhappa. Vonandi ekki.“