Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Guðný syrgir Daníel sem var myrtur um helgina: „Hjartað þitt vildi ekki hætta að slá“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Elsku besti litli bróðir minn. Ég vil ekki trúa að þú sért farinn frá okkur. Þetta er svo ósanngjarnt og óraunverulegt… Þú áttir þetta ekki skilið. Sakna þín svo mikið strax.“

Þetta skrifar Guðný Sigríður Eiríksdóttir en bróðir hennar lést um helgina eftir hrottalega árás sem lögregla rannsakar sem morð. Guðný skrifar falleg minningarorð um Daníel á Facebook en hún hefur gefið Mannlífi góðfúslegt leyfi til að endurbirta þau. Hún segir í samtali við Mannlíf að Daníel hafði staðið sig vel undanfarið og var líkt og klettur fyrir marga, alltaf boðinn og búinn til að hjálpa öðrum.

Guðný segir Daníel hafa verið klett hennar og nú eigi hún erfitt með að hugsa til þess að geta ekki hringt í hann. „Elsku Daníel minn þú máttir ekkert aumt sjá & alltaf varstu tilbúinn til að hjálpa öllum. Það kom þér stundum í vandræði og þú mættir alltaf ósigrandi til leiks. Þú varst svo hraustur með óteljandi líf! Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu þínu. Hjartað þitt vildi ekki hætta að slá. Þú þráðir svo heitt að lifa eðlilegu lífi elsku Daníel minn og stóðst þig eins og hetja. Þú varst klettur fyrir svo marga síðustu mánuði,“ segir Guðný.

Hún segir að þau hafi ávallt verið náin systkini og hún stolt af honum. „Margir sem sáu ekki sólina fyrir þér. Ég var svo stollt af þér yndið mitt. Það var æðislegt að sjá þig svona hamingjusaman og þú blómstraðir með Liljunni þinni. Þið áttuð svo fallegt samband og voruð algjörar samlokur. Þú varst alltaf til staðar fyrir hana og son hennar. Ég ligg alveg dofin upp í rúmi og skoða myndir af þér í símanum mínum,“ segir Guðný.

Hún segir þau hafa átt margar góðar stundir saman. „Ó hvað við áttum margar góðar minningar saman. Það var alltaf stutt í grínið þegar við vorum saman. Sakna þess að þurfa skutla þér útum allt, kíkja í lunch og fá okkur kaffibolla. Allar Florida ferðirnar með mömmu & pabba eru efst í huga. Við vorum með svo mörg framtíðar plön saman elsku Daníel minn. Draumurinn þinn var að verða ríkur business kall. Svo erfitt að hugsa til þess að ég muni ekki getað hringt í þig lengur. En ég veit að þú vakir yfir okkur & heyrir í okkur.“

Guðný segist að lokum muna elska hann að eilífu. „Það verður erfiðast í heimi að útskýra fyrir Gabríelu & Benjamín að þú sért farinn upp til himna. Þau munu sakna þín svo mikið. Þau litu svo upp til þín stóri besti uppáhalds frændi. Þú elskaðir þau svo mikið & þau elskuðu þig. Er svo þakklát fyrir fallegu kveðjustundina sem við áttum með þér. Hvíldu í friði elsku litli bróðir minn. Elska þig að eilífu.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -