Mánudagur 29. apríl, 2024
8.7 C
Reykjavik

Hanna hraunar yfir KSÍ: „Ætlar KSÍ að þagga niður ofbeldi sem gerendur á þeirra vegum hafa beitt?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskólakennari og forkona jafnréttisnefndar KÍ, er ekki sátt við hvernig KSÍ hefur þagað þunnu hljóði yfir ofbeldi sem hún vill meina að margir landsliðsmenn í knattspyrnu hafi gerst sekir um:

„Óhætt er að fullyrða að knattspyrna sé vinsælasta íþrótt heims. Fólk sem hefur í raun engan áhuga á íþróttum á sér uppáhaldslið og fylgist spennt með mótum. Á sama tíma hefur spilling og ákveðið siðleysi fylgt íþróttinni – að minnsta kosti undanfarna áratugi. Vafalaust tengist það þeirri staðreynd að vinsældunum fylgja miklir fjármunir.“

Hún segir að „skemmst er að minnast þess að FIFA – Alþjóða knattspyrnusambandið – var kallað ,,skipulögð glæpasamtök” af bandarískum stjórnvöldum (heimild: Vera Illugadóttir, 2018, Í ljósi sögunnar) vegna yfirgengilegrar spillingar. Þá hefur vændi – þar með talið mansal – verið hluti af skipulagi stórmóta. Áhugavert, en jafnframt sorglegt, er að rifja upp þegar forysta KSÍ hafnaði beiðni feminísks hóps þess efnis að taka opinbera afstöðu gegn mansali árið 2006 í tengslum við heimsmeistaramót. Forystumenn í KSÍ voru staðnir að því að nota greiðslukort sambandsins á nektarstað um árið og barátta fótboltakvenna fyrir jafnri stöðu virðist endalaus. Þá er þekkt kvenfyrirlitningin sem tíðkast í búningsklefum karlaboltans. Dómarar í karladeild fá helmingi hærri laun en starfssystkin þeirra í kvennadeild.

Ofangreint er þó ekki umfjöllunarefni þessa pistils, þó svo að það sé vissulega bakgrunnurinn.“

- Auglýsing -

Hanna Björg nefnir að „fyrir nokkru steig ung kona fram og sagði frá hópnauðgun sem hún varð fyrir árið 2010. Lýsingin á ofbeldinu er hroðaleg og glæpurinn varðar við margra ára fangelsi. Það hafði þó ekki meiri áhrif á gerendurna – landsliðsmennina – en svo að þeir gerðu grín að nauðguninni daginn eftir. Í frásögninni kemur fram hvaða afleiðingar þessi unga kona hefur þurft að burðast með. Lýsingin er þyngri en tárum taki. Þolandanum var eindregið ráðlagt að kæra ekki, við ofurefli væri að etja.“

Hanna Björg nefnir að mun „fleiri frásagnir eru um landsliðsmenn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kynferðislegu ofbeldi og heimilisofbeldi. Þetta virðist ekki hafa haft nein áhrif á velgengni þessara manna; þeim er hampað og njóta mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar. Þöggunin er alger, og KSÍ ber vitaskuld ábyrgð á henni.“

Hún segir KSÍ vera leiðandi afl í íslensku íþróttalífi en fram til þessa hafi sambandinu ekki tekist að vera afgerandi í jafnréttismálum né náð miklum árangri, þó svo að heimasíða þeirra skarti fínni jafnréttisstefnu og -áætlun.

- Auglýsing -

„Uppeldishlutverk KSÍ er stórt og mikið. Börn, ungmenni og fullorðið fólk líta upp til þeirra leikmanna sem vel gengur og þeir eru dýrkaðir og dáðir. Þau sem lengst ná eru fyrirmyndir þúsunda, það er mikil ábyrgð.“

Og Hanna segir að „spurningin sem á svo mörgum brennur er þessi: Ætlar KSÍ að halda áfram að þagga niður ofbeldi sem gerendur á þeirra vegum hafa beitt? Að vera gerendameðvirk og fórna stúlkum og konum á altari keppniskarla? Er það afstaða sem hreyfingin vill standa fyrir?“

Hún nefnir að í þessu samhengi séu KSÍ tvær leiðir færar; annars vegar að halda áfram að senda þau skýru skilaboð til stráka og karla að þeir geti beitt konur miskunnarlausu ofbeldi, án þess að það hafi nokkur áhrif á velgengni þeirra og því síður að þeir þurfi að axla ábyrgð á gerðum sínum.

Og bætir við:

„Skilaboðin til stúlkna og kvenna frá KSÍ eru að þær þurfi að sætta sig við ofbeldið af hálfu karla og þegja yfir því, annars verði þær sakaðar um lygi. Að ofbeldismenning sé sjálfsögð og eðlileg. Að mikilvægi karla sé óumdeilanlega meira en kvenna.

Hin leiðin fyrir KSÍ er að verða hluti af lausninni, að rjúfa vítahring ofbeldis, þöggunar og kvenfyrirlitningar. Taka skýra afstöðu með þolendum, jafnrétti og réttlætinu,“ segir Hanna tekur skýrt fram að „þögnin er ekki hlutlaus – heldur afstaða með ríkjandi ástandi.

Ég óska KSÍ þess að þar láti fólk ekki kappið og gerendameðvirknina bera siðferðið ofurliði. Ég óska þess að KSÍ taki af skarið af styrk, hugrekki og samfélagslegri ábyrgð – fyrir okkur öll og fyrir framtíðina.“

(Innskot blaðamanns) Þess má geta að eftirfarandi texta má finna á heimasíðu KSÍ:

„5.10. Sérhvert aðildarfélag skal bera ábyrgð á framkomu leikmanna, forráðamanna, félagsmanna og stuðningsmanna sinna og allra þeirra sem hafa hlutverki að gegna á vegum þess vegna ámælisverðrar eða óásættanlegrar framkomu þessara aðila innan vébanda KSÍ, og getur sætt viðurlögum sem nánar er kveðið á um í lögum þessum og reglugerðum KSÍ.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -