Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Hraunað yfir myndband Reynis: „Á erfitt með að skilja hvernig faðir dætra getur talað svona“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Áhrifavaldurinn Reynir Bergmann er ekki óvanur því að láta umdeild orð falla, en hann birti myndband á Instagram aðgangi sínum og sagðist þar styðja Sölva Tryggvason fjölmiðlamann.

„Mellur og vændiskonur, fokkið ykkur!“ segir Reynir í myndbandinu. Þetta kemur í kjölfarið á magnandi umræðu um Sölva og fleiri einstaklinga sem eru þjóðþekktir. Gífurlegur fjöldi fólks hefur stigið fram með sínar sögur af kynferðisofbeldi og hafa margir merkt sínar færslur með myllumerkinu #metoo. Konur eru í áberandi meirihluta þeirra sem stíga fram en hafa einnig karlmenn og fólk af öðrum kynjum frá sínum málum. Gerendur í sögunum eru í allflestum tilfellum karlmenni.

Líkt og ber að geta voru skilaboð Reynis harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlum, eins og neðangreind ummæli gefa til kynna.

- Auglýsing -

 

- Auglýsing -

Þá dró Reynir ummæli sín til baka á Instagram í gær og hlóð í „bullandi afsökunarbeiðni.“ Hann segir:

„Það er búið að skamma mig. Auðvitað er ég ekki team neinn. Eða jú. Ég er hlutlaus þar til sekt er sönnuð. Auðvitað dreg ég þetta til baka.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -