Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Hungurverkfall í Hafnarfirði: „Ég mun deyja hér“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég kalla þetta líf, ekkert líf„ segir Zesilua þegar blaðamaður stendur fyrir utan tvö rauð tjöld sem tjaldað hefur verið fyrir utan Útlendingastofnun í Hafnarfirði og spyr þá sem inni sitja hvort þeir vilji tala.

Mennirnir dvelja í tjöldum fyrir utan Útlendingastofnun í Hafnarfirði. Mynd/ Lára Garðarsdóttir

Zesilua, Elah Amadou og einn annar koma skríðandi út úr tjöldunum í nístingsfrosti og hávaðinn frá umferðinni á Fjarðarhrauni er yfirgnæfandi. Í það minnsta þrír umsækjendur alþjóðlegrar verndar hafa tjaldað í mótmælaskyni þar sem þeir hafa nú verið sviptir lágmarksþjónustu. 

„Við höfum ekki rétt á mat, strætókorti, ekkert að gera og svo er okkur bolað út, – Til hvers?“

Bú­setu­úr­ræði á veg­um rík­is­lög­reglu­stjóra í Hafnar­f­irði lokar klukkan 10 á morgnanna og mennirnir sendir út: „Við erum sendir út, en í hvað? Við eigum enga fjölskyldu hér eða aðstandendur og erum án peninga.“

Elag hefur verið hér á landi síðan 2021.

Lýsa mennirnir framgöngu mála hjá Útlendingastofnun sem endalausri bið sem engum árangri skili. Krafa mannanna er afnám þjónustusviptingarinnar og að hljóta alþjóðlega vernd hér á landi.

 „Ég mun deyja hér,“ segir Zesilua en mennirnir eru í hungurverkfalli og segja þeir félaga sína hafa reynt að færa þeim eitthvað til að borða en þeir neitað.

- Auglýsing -

Mynd/LG

Útlendingastofnun hefur engu skeytt um mótmæli þeirra og lýsa þeir vonbrigðum sínum og  eru þeir endalaust þreyttir á biðinni. Mennirnir eru réttinda laustir og mega ekki að vinna eða sjá sér farborða. „I want to work,“ segir einn þeirra en þar sem þeir eru ekki með kennitölu standa þeir réttindalausir. „Ég get ekki skilið, af hverju ég fæ ekki kennitölu. Ég sótti um kennitölu en var sagt að hætta að reyna.“

Endanleg synjun

„Rík­is­lög­reglu­stjóri tók við þessu bú­setu­úr­ræði af Vinnu­mála­stofn­un og úrræðið er fyr­ir þá sem eru komn­ir með end­an­lega synj­un. Þeir geta verið í úrræðinu í 30 daga en ef þeir eru í sam­starfi geta þeir verið leng­ur.

- Auglýsing -

Ef menn eru ekki til­bún­ir til sam­starfs, sem lít­ur helst að öfl­un ferðaskil­ríkja, þá er þjón­ust­an felld niður í sam­ræmi við 33. grein út­lend­ingalaga eft­ir að henni var breytt,“ segir Krist­ín María Gunn­ars­dótt­ir, deild­ar­stjóri stoðdeild­ar rík­is­lög­reglu­stjóra, í samtali við mbl.is. Jafnframt kemur fram að mönnunum sé vel­komið að nýta sér bú­setu­úr­ræði rík­is­lög­reglu­stjóra að því gefnu að þeir séu samvinnuþýðir að sín­um brott­flutn­ingi sam­kvæmt ákvæðum út­lend­ingalaga.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -