- Auglýsing -
Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í dag gæsluvarðhald til 15. apríl vegna karlmanns sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana 28. mars.
Sjá einnig: Andlát konu í Sandgerði rannsakað sem sakamál
Maðurinn mætti ekki fyrir dóminn, og mun maðurinn bera við minnisleysi og hefur ekki viljað tjá sig við lögreglu.
Rannsókn málsins er í höndum Lögreglunnar á Suðurnesjum.
Sjá einnig: Handtekinn þremur dögum eftir andlát sambýliskonu: Bæjarbúar slegnir