Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Hjóla hringinn í kringum landið til styrktar krabbameinssjúkum börnum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Team Rynkeby Ísland hjólreiðahópurinn leggur á morgun af stað í hringferð um landið, ferðin er til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna (SKB).

Lagt verður af stað frá Barnaspítala Hringsins kl. 10 á laugardagsmorgun í lögreglufylgd. Rósa Guðbjartsdóttir, formaður SKB og bæjarstjóri Hafnarfjarðar, mun hala ræðu áður en hópurinn hjólar af stað.

Viðburður á Facebook.

Hópurinn ætlaði í árlega hjólreiðaferð frá Danmörku til Parísar í Frakklandi, en sökum kórónuveirufaraldursins varð ekki af þeirri ferð, og var því ákveðið að hjóla innanlands í staðinn.

Hjólreiðahópurinn mun hjóla 850 km í kringum landið og stendur ferðin til 11. júlí. Unnt er að heita á hópinn með því að hringja í styrktarnúmerin:

907-1601         1.500 kr.
907-1602         3.000 kr.
907-1603         5.000 kr.

- Auglýsing -
Styrktarnúmerin

Team Rynkeby er stærsta evrópska góðgerðarverkefnið, þar sem þátttakendur hjóla á hverju ári 1.200 km leið frá Danmörku til Parísar til styrktar langveikum börnum og fjölskyldum þeirra. Team Rynkeby Ísland var stofnað árið 2017 með það að markmiði að hjóla í söfnunarátaki Team Rynkeby til styrktar SKB. Á síðastliðnu ári söfnuðust 23,6 milljónir króna.

Sjá einnig: Team Rynkeby hópurinn kom hjólandi til Guðna Th.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -