Eins og Mannlíf greindi frá var ritstjóra Frettin.is, Margréti Friðriksdóttur, vísað úr flugvél Icelandair; hún var að leið til Þýskalands og var samkvæmt heimildum Mannlífs vísað úr vélinni vegna þess að hún neitaði að bera grímu.
Sjálf hefur Margrét sagt að starfsfólk Icelandair hafi sýnt henni ókurteisi; Margŕéti var fylgt úr vélinni í af lögregluþjónum.
Nú hefur Margréti borist liðsstyrkur úr óvæntri árr; en sjálf Ísdrottningin, Ásdís Rán Gunnarsdóttir sakar flugfreyjur um borð í vél Icelandair hafa viljandi látið vísa Margréti úr vélinni:
„Aðeins of langt gengið af flugþjónum að vísa farþega út i staðinn fyrir að redda öðru plássi fyrir tösku og sjattla málin, þær eiga að vera þjálfaðar i þvi. Konan setti upp grímuna og vantaði bara pláss fyrir töskuna sem hún var búin að borga fyrir og inniheldur randýran búnað,“ segir Ásdís Rán og bætir við:
„Lítið mál að redda þessu a viðeigandi kurteisan hátt án þess að kynda undir aðstæðum. Þær hafa pottþétt vitað hver Margrét er og örugglega verið með stæla útaf því.“