Föstudagur 17. maí, 2024
4.8 C
Reykjavik

Sósíalistar líkja Þorsteini Má við Adolf Hitler: „Málið útrætt. Heil Samherji !“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Roði – Ungir Sósíalistar birtu myndagrín á Facebooksíðu Sósíalistaflokksins sem mörgum þótti vægast sagt ósmekklegt. Þar er forstjóra Samherja líkt við Adolf Hitler sjálfan.

Hinir ungu Sósíalistar birtu mynd sem búið  var að breita svo hún liti út fyrir að vera úr fréttum. Á myndinni er búið að teikna skegg á Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja en tilefnið var hópuppsögn dótturfyrirtækis Samherja á Hólmavík.

„Fréttatilkynning var að berast frá Hólmavík. Samherji TV birtir ávarp leiðtogans.

Þorsteinn “the führer” fyrirskipar uppsagnir. Helmingur alls verkafólks má vera úti.

Málið útrætt. Heil Samherji !“

Viðbrögðin við þessu gríni voru blendin en nokkrir sýndu óánægju sína og skrifuðu athugasemd við færsluna. Guddi er einn þeirra: „Finnst nú frekar fyrir neðan ykkar virðingu að líkja manninum við Hitler. Fær mann í kjánahroll svona svipað og þegar maður var unglingur að krota hakakross í stærðfræðibækur.“

Þessari athugasemd svaraði Arnar nokkur: „Þú verður nú að viðurkenna að þeir eru annsi líkir.“ 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -