Þjóðhátíðardagur Úkraínu er á morgun, 24. ágúst en íslenskur blaðamaður sem dvelur í landinu segir að búist sé við að Rússar muni minna á sig.
Valur Gunnarsson blaðamaður dvelur um þessar mundir í Kænugarði í hinni stríðshrjáðu Úkraínu. Á Facebook birti hann í morgun ljósmynd frá undirbúningi fyrir þjóðhátíðardag Úkraínu sem er á morgun. Segir hann í texta við myndina að búast megi við stórárás Rússa í tilefni dagsins. Valur gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna:
„Búist er við mikilli flugeldasýningu á þjóðhátíðardaginn og að Rússarnir muni minna rækilega á sig. Sumir segja að best sé að læsa sig inni á klósetti, aðrir að fara fram á gang. Æskilegast er að yfirgefa bæinn en í það minnsta halda sig frá gluggum.“