Sjá einnig: 

Svona var atburðarrásin þegar Eiður Smári var rekinn

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, hringdi í alla meðlimi stjórnar KSÍ og ræddi við þá um málefni Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrrverandi aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins, í aðdraganda þess að stjórnin tók þá ákvörðun að Eiður léti af störfum.

- Auglýsing -

Þetta kemur fram í fundargerð KSÍ sem gerð hefur verið opinber en það var eftir þann fund, 23. nóvember síðastliðinn, sem Eiður Smári var rekinn. „Áfram Ísland,“ sagði Eiður í yfirlýsingu inni á vef KSÍ vegna starfslokanna.

Starfslok Eiðs Smára og umræddan gleðskap landsliðsins hafa mikið verið til umræðu undanfarið. Eiður var rekinn fyrir viku síðan en í tilkynningu frá KSÍ var sagt að uppsögnin væri gerð með samkomulagi stjórnar og Eiðs.

Sjá einnig: 

Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsendingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

- Auglýsing -

Líkt og Mannlíf greindi frá tengist brottreksturinn hins vegar áfengisneyslu í KSÍ-partý eftir leik landsliðsins gegn N-Makedóníu um miðjan mánuðinn. Vanda formaður var í partýinu og samkvæmt fundagerðinni hringdi hún í alla stjórnarmenn eftir heimkomuna. Eiður Smári var svo rekinn eftir fund stjórnar.
Eiður hefur verið í þjálfarateymi A-landsliðs karla frá desember 2020, en hann lék á sínum tíma 88 leiki fyrir liðið og skoraði í þeim 26 mörk. Í sumar var Eiður sendur í tímabundið leyfi frá störfum, eftir að Mannlíf greindi frá myndbandi sem var í dreifingu af þjálfaranum á samfélagsmiðlum.

Sjá einnig:

Myndband af Eiði Smára í miðbænum – Hneykslaði vegfarendur með athæfi sínu

Myndband af Eiði í dapurlegu ástandi að létta á sér í miðborg Reykjavíkur fór sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum. Eiður sást þar með buxurnar á hælunum, að létta á sér á almannafæri. Hann virðist vera í því ástandi að átta sig illa á umhverfi sínu. Fólki sem varð vitni að atburðinum var brugðið en Eiður er í senn þjóðhetja og starfaði sem þjálfari landsliðs karla og álitsgjafi Símans. Þá var einnig umtalað að Eiður hafi verið undir áhrifum í útsendingu sem knattspyrnusérfræðingur í þættinum Vaktin í Sjónvarpi Símans. líkt og Mannlíf greindi frá.