Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Kristrún og Mette ræddu leiðina til stjórnar: „Erum ekki í pólitík til að vera í stjórnarandstöðu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Við erum ekki í pólitík til að vera í stjórnarandstöðu,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, sem fundaði í gær með Mette Frederiksen, formanni danska Jafnaðarflokksins og forsætisráðherra Danmerkur.

Kristrún segir þær hafa rætt leiðina frá stjórnarandstöðu til ríkisstjórnar. Hún kveðst hafa fengið góð ráð hjá Mette sem lítist vel á upplegg Samfylkingarinnar síðustu misserin.

Samfylkingin
Kristen Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar
Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur

„Sósíaldemókratar mega aldrei festast í því að vera andstöðuflokkar. Mette líst vel á upplegg okkar í Samfylkingunni um að endurheimta traust með því að fara aftur í kjarnann og leggja ofuráherslu á kjör, efnahag og velferð venjulegs fólks. En það útheimtir aga — og Mette gaf mér ýmis góð ráð um það hvernig á að halda sjó með sína stefnu,“ segir Kristrún í stöðuuppfærslu á Facebook.

Mette flaug til Íslands með flugvél í eigu danska hersins og lenti á Reykjavíkurflugvelli um hálf fimm í gær. Þaðan lá leiðin beint til fundar við Kristrúnu og svo á leiðtogaráðsfund Evrópuráðsins í Hörpu.

„Við erum ekki í pólitík til að vera í stjórnarandstöðu. Jafnaðarmennskan er mikilvægari en svo,“ segir Kristrún ennfremur. Því þurfi Samfylkingin að endurheimta traust, komast í ríkisstjórn og skila af sér árangri sem munar um strax á fyrsta kjörtímabili í stjórn.

- Auglýsing -

„Verkefnin eru ærin. Það er gott að geta leitað til forystufólks í systurflokkum Samfylkingarinnar, ekki síst á Norðurlöndum þar sem samfélagsgerðin er líkust því sem við þekkjum hér á Íslandi. Og gott að finna að danski forsætisráðherrann hefur trú á því sem við erum að gera,“ segir Kristrún og bætir við að þær Mette hafi meðal annars rætt stuttlega um innflytjendamál og loftslagsmál.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -