Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Margrét Erla glímdi við fæðingarþunglyndi: „Upplifði engar tilfinningar og fann ekki neitt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Dóttir mín, dásamlegasta manneskja heims, fagnaði tveggja ára afmæli um liðna helgi. Móðir hennar henti í mjög ljóta en gríðarlega góða tígrisköku af þessu tilefni. Eins og gengur og gerist minntu samfélagsmiðlar mig á gamlar minningar – og þar birtist mynd af henni, voðalega krumpaðri með fósturfituna í hárinu,“ skrifar Margrét Erla Maack í pistli í dag.

 

Bætir við:

 

„Þegar ég sá þessa mynd helltust yfir mig tilfinningar. Þarna sá ég fallegasta barn í heimi. En á þeim tíma sem myndin var tekin, 9. október 2019, upplifði ég engar tilfinningar, bara flata tilfinningalínu, búin á því eftir frekar eðlilega fæðingu.“

 

- Auglýsing -

Þegar Margrét hugsar til baka „tekur hjarta mitt kipp þegar ég man eftir manninum mínum svipta sig klæðum til að leyfa henni að leggjast á bera bringuna sína, en þá fann ég ekkert. Ekki neitt.

 

Og þannig leið fyrsta árið. Ég var eins og draugur sem rétt náði að sinna sjálfri mér og barninu, engu öðru. Ég er ennþá með hana á brjósti því það er það eina sem ég gerði rétt á sínum tíma. Allt annað á fyrsta árinu fannst mér misheppnað og ekki nógu gott,“ segir hún og heldur áfram:

- Auglýsing -

 

„Sem betur fer óskaði ég eftir hjálp, alltof seint og það var ógeðslega erfitt. Fæðingarþunglyndi er stórt orð. Það felur í sér hræðilegan niður á við-spíral og það erfiðasta er að það er ekki hægt að safna í neinn gleðibanka.“

 

Hún vonar að skrif hennar hjálpi að minnsta kosti „einni móður að segja upphátt við einhvern annan að hún sé þunglynd, þá er takmarkinu náð. Ástin er þarna. En hún er hvorki sjálfsögð né skapast um leið og klippt er á naflastrenginn.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -