Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Segir lausnina í deilum Icelandair og flugfreyja vera eitur í beinum aðgerðarsinna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og þingmaður lætur verkalýðshreyfinguna heyra það. Segir að „jaðarsettu verkalýðsrekendurnir sem vildu níðast á Icelandair með fé lífeyrissjóðseigenda“ í kjaradeilu Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands hljóti að sæta rannsókn fjármálaeftirlitsins.

„Öfgafullum andstæðingum Icelandair verður tíðrætt um „afleik“ Icelandair. Hann leiddi þó til niðurstöðu og lausnar sem er eitur í beinum aðgerðarsinnanna,“ skrifar Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og þingmaður meðal annars í grein sem hann deilir á síðu sinni. Fyrirsögnin er Óttinn við fjármálaeftirlitið.

Þar segir Björn meðal annars að jaðarasettir stjórnendur ASÍ, Eflingar, VR og verkalýðsfélagsins á Akranesi hafi farið hamförum í málinu og hótað í nafni lífeyrissjóðanna að gengið yrði að Icelandair dauðu. Að baki boðskap þeirra hafi ómað „hatursáróður sjálfskipaðs hugmyndafræðings sósíalista, Gunnars Smára Egilssonar“. Annar sósíalisti, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hafi orðið sér mest til skammar í málinu með ummælum sínum um Láru V. Júlíusdóttur lögfræðing. Þar hafi enn sannast að Sólveig Anna þoli ekki „að með skýrum rökum sé brugðist við öfgum hennar“. Þá segir Björn skrif Viðars Þorsteinssonar, framkvæmdastjórar Eflingar, um kjaradeiluna beinlínis vera níð um Icelandair.

„Þegar vakið var máls á því laugardaginn 18. júlí að fjármálaeftirlitið ætti að hafa auga með beitingu lífeyrissjóðanna, settist Viðar Þorsteinsson við tölvuna og skrifaði á Facebook:
„Verkfallsaðgerðir og dómsmál í Félagsdómi munu skýrast en vísar afleiðingar af þessum afleik nú þegar eru þær að IcelandAir er ekki aðeins óvinsælasta fyrirtæki á landinu heldur einnig það óálitlegasta fyrir innlenda fjárfesta, sérstaklega þá sem bundnir eru einhvers konar samfélagsábyrgð. Sem er óheppileg staða því fyrirtækið var á biðilsbuxum gagnvart fjárfestingu frá eftirlaunasjóðum verkafólks.
Framkvæmdastjórinn [Halldór Benjamín Þorbergsson hjá SA] virðist nú mjög upptekinn af því að hylma yfir sóðaskapinn og mistökin, og kallar til Fjármálaeftirlitið í von um að það þaggi niður í félagslega kjörnum leiðtogum verkalýðshreyfingarinnar og málefnalegri gagnrýni þeirra.“

„Jaðarsettu verkalýðsrekendurnir sem vildu níðast á Icelandair með fé lífeyrissjóðseigenda hljóta að sæta rannsókn fjármálaeftirlitsins.“

Björn segir að fróðlegt verði að sjá hvernig Viðari muni ganga í þeirri ritskoðunarherferð, en spyr hvort það fari ekki að verða spurning um að menn líti sér nær. „Þetta níð um Icelandair er greinilega skrifað áður en Icelandair og FFÍ gerðu kjarasamning sinn. Viðar gengur að því sem vísu að Icelandair verði stefnt fyrir Félagsdóm og þykir ekkert sjálfsagðara. Hann umturnast hins vegar þegar vikið er að því að fjármálaeftirlitið sinni skyldum sínum gagnvart verkalýðsrekendum og sama gerir Vilhjálmur Birgisson á Facebook-síðu sinni.“

Björn telur hlálegt að þessir menn telji sig sýna „samfélagsábyrgð“ með framgöngu sinni. „Jaðarsettu verkalýðsrekendurnir sem vildu níðast á Icelandair með fé lífeyrissjóðseigenda hljóta að sæta rannsókn fjármálaeftirlitsins,“ skrifar hann.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -