Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Svandís fær Drífu til að móta þjónustu við þolendur heimilisofbeldis

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Svandís Svavars­dótt­ir heil­brigðisráðherra hef­ur ákveðið að láta móta og inn­leiða sam­ræmt verklag fyr­ir heil­brigðis­stofn­an­ir vegna þjón­ustu við þolend­ur heim­il­isof­beld­is og hefur Drífa Jónasdóttir, afbrotafræðingur verið ráðin til verksins.

Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins en skýrsla Finnborgar Salome Steinþórsdóttur, nýdoktor í kynjafræði, Heilsa og heil­brigðisþjón­usta: kynja- og jafn­rétt­is­sjón­ar­mið verður höfð til hliðsjónar við mótun samræms verklags. Skýrsluna vann Finnborg fyrir heilbrigðisráðuneytið og fela niðurstöður skýrslunnar í sér mat á því hvernig heilbrigðiskerfið mæti ólíkum þörfum kynjanna ásamt tillögum að úrbótum.

Barnshafandi þolendur 16% líklegri til að missa fóstur

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að barnshafandi konur sem verða fyrir ofbeldi í nánum samböndum eru 16% líklegri en aðrar til að missa fóstur og 41% líklegri til að eiga barn fyrir tímann. Vart kemur nokkrum á óvart að ofbeldi í nánum samböndum geti haft alvarleg áhrif á andlega heilsu þolenda.

Í skýrslunni kemur þá einnig fram að heimilisofbeldi hafi áhrif á heilsu og líðan barna sem alast upp við slíkar aðstæður en þau börn séu í aukinni hættu á að þróa með sér raskanir auk þess að búa við skertari lífsgæði en önnur börn.

Drífa mótar og innleiðir samræmt verklag fyrir heilbrigðisstofnanir

Drífa vinnur nú að doktorsverkefni við læknadeild Háskóla Íslands þar sem hún leitast við að meta umfang, eðli og kostnað samfélagsins af völdum heimilisofbeldis. Drífa er jafnframt verkefnastjóri hjá Kvennaathvarfinu og sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands þar sem hún vinnur m.a. að umfangsmikilli rannsókn á kynbundnu ofbeldi á Íslandi.

Verkefni Drífu, sem segir hér að ofan, verður að móta og innleiða samræmt verklag fyrir heilbrigðisstofnanir vegna þjónustu við þolendur heimilisofbeldis og muni samráð við heilbrigðisstofnanir, barnaverndaryfirvöld og lögreglu haft að leiðarljósi við stefnumótun og skilgreiningu verklags.

- Auglýsing -
Leggja þarf mat á árangur verkferla og úrræða við móttöku þolenda

„Ákvörðun heil­brigðisráðherra um að ráðast í gerð sam­ræmds verklags hjá heil­brigðis­stofn­un­um vegna þjón­ustu við þolend­ur heim­il­isof­beld­is er í sam­ræmi við ábend­ing­ar til úr­bóta í skýrslu Finn­borg­ar [Salóme Steinþórsdóttur, nýdoktors í kynjafræði]. Þar seg­ir m.a. að leggja þurfi mat á ár­ang­ur verk­ferla og úrræða við mót­töku þolenda of­beld­is í nán­um sam­bönd­um, skoða hvernig miðlun upp­lýs­inga er háttað milli þjón­ustu­kerfa og mis­mun­andi úrræða, auk þess sem byggja þurfi á þekk­ingu um valda­ó­jafn­vægi kynj­anna og öðrum þátt­um sem hafa áhrif á fé­lags­lega stöðu fólks og aðstæður,“ segir jafnframt á vef ráðuneytisins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -