Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Svik í nafni Landsbankans – Láttu ekki ljúga út úr þér peninga

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Töluvert hefur borið á því að fólk sé að fá send sms skilaboð í nafni Landsbankans. Þar er óskað eftir að viðkomandi fari á vefsíðu til að staðfesta símanúmer sitt. SMS skilaboðin eru látin líta út fyrir að vera send í sama nafni og Landsbankinn sendir öryggisnúmer frá þegar viðkomandi skráir sig inn á vefsíðu Landsbankans.

Hér má sjá skjaskot af sms sem virðist koma frá Landsbankanum en eru svik.

Vegna þessa hafa talið að um raunveruleg skilaboð væri að ræða.

Netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar, CERT-IS, varar við bylgju svika sem nú er í gangi. Um er að ræða nokkrar tegundir af svikum en ekki er talið að þau tengist með einum eða öðrum hætti.

Vegna þess hve margir hafa fallið fyrir þeim er talin ástæða til að hvetja fólk til að vera sérstaklega vel á varðbergi fyrir svikum sem þessum.

Einnig hefur borið á fjölda símtala þar sem hringt er úr leyninúmeri og viðkomandi þykist vera starfsmaður íslenskra fyrirtækja og reynir að fá upp aðgangssupplýsingar inn á Paypal reikning.

CERT-IS ítrekar að fólk gefi aldrei frá sér notendanöfn eða lykilorð í gegnum síma eða inni á vefsíðum sem það þekkir ekki til.

- Auglýsing -

Hægt er að skoða góð ráð gegn net- og símasvikum á www.netoryggi.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -