„Það er ráðherrans að taka ákvörðun og það er ráðherrans að taka tillit til annarra sjónarmiða. En út frá sóttvarnasjónarmiði þá held ég að þetta geti boðið hættunni heim,“ sagði Þórólfur á upplýsingafundi almannavarna í morgun.

- Auglýsing -

Þá gagnrýndi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Kári Stefánsson, ráðherrann einnig vegna undanþágunarinnar.

„Ég held að þetta séu byrjunarmistök hjá góðum manni sem er allt í einu orðinn heilbrigðisráðherra. Það var ekkert verra hægt að gera heldur en að gefa undanþágu fyrir vínveitingastaði í dag. Þetta er akkurat sá dagur sem menn safnast saman,“ sagði Kári við Vísi.