Ragnar Þór Ingólfsson verkalýðsforingi sýnir á sér nýja, eða réttara sagt gamla hlið á Spotify en þar spilar hann á trommur í glænýju lagi.
Hinn nýendurkjörni formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson segir í nýlegri færslu á Facebook að það sé „nauðsynlegt að horfa upp frá verkefnum verkalýðshreyfingarinnar endrum og eins.“ Það hafi hann einmitt gert með því að dusta rykið af trommukjuðunum eftir langt hlé og tæma hugann. Deilir hann svo með fylgjendum sínum á Facebook, glænýtt lag hljómsveitarinnar Fjöll, þar sem hann spilar á trommur. Lagið heitir Festar og má hlusta á hér.
Færsluna má svo lesa hér að neðan:
„Lífið er dásamlegt! Festar er fyrsta lagið með hljómsveitinni Fjöll en hér gefst ykkur tækifæri til að hlusta á mig spila á trommur

