Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Tryggvi kíkti í heimsókn til Mannlífs – Gæddi sér á nýbökuðu kryddbrauði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tjaldurinn Tryggvi kíkti í heimsókn fyrir utan skrifstofur Mannlífs í dag og gæddi sér á nýbökuðu kryddbrauði.

Tryggvi, sem hefur vanið komur sínar í Ármúlann síðustu þrjá áratugi, kíkti nokkrum sinnum á gluggasyllurnar fyrir utan skrifstofur Mannlífs seinni partinn í dag þar sem hann skoðaði sjálfan sig í spegli enda nokkuð hégómagjarn eins og vill oft loða við fræga einstaklinga. Einn af blaðamönnum Mannlífs bauð Tryggva upp á nýbakað kryddbrauð en láðist að smyrja það en það kom ekki á sök því Tryggvi hámaði gúmmelaðið í sig.

Af þeim Tryggva og Tryggvínu er annar það að frétta að þau vinna nú hörðum höndum við að koma ungum sínum á legg en þeir reyndust þrír en ekki tveir eins og við sögðum áður frá. Þá hefur Tryggvi verið duglegur að hrekja freka máva á brott frá óðali þeirra á þaki Ísólar enda með talsvert oddhvassari og lengri gogg en þeir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -