Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Ásmundur glímir við skítkast

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki mikið fyrir að láta eiga inni hjá sér í umræðunni. Listamaðurinn Jón Óskar Hafsteinsson gagnrýndi það harkalega í færslu á Facebook að þingmaðurinn hygðist gera út á ferðaþjónustu í Eyjum í sumar. Í þessu skyni hefur hann stofnað fyrirtækið Þingmannaleið ohg keypt sér litla rútu. Sakaði Jón Óskar þingmanninn um að fara gegn veikburða ferðaþjónustu í Eyjum með útgerð sinni.

Ásmundur svaraði fyrir sig í blaðagrein þar sem hann fordæmir skrifin og bendir á að þingmenn hafi fram að þessu fengið að afla sér aukatekna með sjómennsku og hvaðeina án þess að uppskera fordæmingu. Þá segir hann hugmynd sína hafa verið þá að fara með túristana sína í heimsóknir til listamanna í Vestmannaeyjum. Hann gefur lítið fyrir gagnrýni Jóns Óskars og segir hana vera óhróður.

„Jón Óskar opnaði leið fyr­ir skít­kast í minn garð, viðbjóðsleg­ar ávirðing­ar, sem segja meira um þá sem slíkt láta frá sér fara en mig,“ skrifar Ásmundur.

Nú er beðið eftir fyrsta farmi ferðamanna þingmannsins og næstu lotu í einvígi listmannsins og þingmannsins …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -