Laugardagur 27. apríl, 2024
9.2 C
Reykjavik

Tölum um unglinga

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Höfundur / Sara Dögg Eiríksdóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur hjá Samskiptastöðinni.  

Já, flest höfum við verið þar, sumir eru að upplifa unglingsárin og aðrir eiga það eftir. Unglingsárin geta verið skemmtilegur tími en jafnframt krefjandi og þá oft fyrir foreldra.

Hvað getur þú gert til að eiga í góðu sambandi við unglinginn þinn?

Það er mikilvægt að byrja snemma að skapa góð tengsl. Góð tengsl við barnið þitt eru forsenda þess að unglingsárin fari vel. Þú getur hugsað þetta þannig að því öruggari tengsl sem þú átt við barnið þitt, þeim mun meiri innistæðu áttu þegar unglingsárin koma.

Á unglingsárunum geta börn breyst mikið. Glaða barnið þitt sem var hugur þinn breytist að því virðist á einni nóttu í úrilla morgunfúla górillu. Engar áhyggjur! Glaða barnið þitt er þarna enn þótt þér finnist sem þú hafir týnt því eða þekkir það varla. Oft á tíðum er eins og þau núll-stillist og þú þurfir að byrja aftur að kenna þeim grunninn eins og að ganga frá eftir sig, fara reglulega í sturtu, skipta um föt, svo dæmi séu tekin.

En hvernig byggir þú upp gott samband við unglinginn?

- Auglýsing -

Mundu að á þessum árum er unglingurinn að skapa sér sjálfstæði. Það er mikilvægt að gefa rými og treysta en vera jafnframt vakandi fyrir því sem er að gerast í lífi hans/hennar. Góð tengsl við unglinginn þinn eru forsenda þess að þú getir gripið inn í aðstæður og leiðbeint þrátt fyrir “hnussið” sem þú færð til baka þegar þú ert að tala við hann/hana.

Eigðu gæðastundir með unglingnum. Spurðu hvað honum/henni finnst gaman, hvaða þætti hann/hún er að horfa á núna og hvaða tónlist er í uppáhaldi þessa dagana. Eru kannski ný áhugamál sem þú veist ekki af? Spurðu hverja hann/hún sé að umgangast og sýndu raunverulegan áhuga og virka hlustun. Vertu forvitin(n) án þess að dæma. Stundum er gott að fara í bíltúr til að spjalla. Margir unglingar eiga auðveldara með að opna sig við þær aðstæður. Segðu líka unglingnum frá þínum degi eða hvað sé að gerast hjá þér. Jafnvel frá því þegar þú varst unglingur. Það er mikilvægt að halda samtali opnu þó að unglingurinn þinn sé kannski ekki að gefa mikið af sér. Sumir unglingar eiga erfitt með nánd en það er samt sem áður mikilvægt að sýna hana. Við þær aðstæður getur verið gott að spyrja unglinginn þinn hvort þú megir knúsa hann/hana.

Það koma yfirleitt alltaf upp einhver mál á unglingsárum en það sem skiptir mestu máli eru þín viðbrögð við þeim aðstæðum.

- Auglýsing -

Ef upp koma aðstæður sem valda ágreiningi er mikilvægt að þú:

  1. Haldir ró þinni (anda inn, anda út).
  2. Sýnir skilning (ég skil vel að þú hafir orðið reið (ur)…).
  3. Forðist að ásaka unglinginn eða aðra.
  4. Notir ég skilaboð eins og; ég skil ekki alveg núna, getur þú útskýrt þetta betur fyrir mér, ég hef tekið eftir því að…
  5. Hlustir á hvað unglingurinn þinn er að segja og notir hvatningu eins og: Getur þú sagt mér aðeins meira um…

Ef aðstæður verða of erfiðar er mikilvægt að leita til fagaðila. Mundu að unglingsárin eru í raun stuttur en afar mikilvægur tími og skiptir sköpum hvernig þau þróast fyrir framtíðina og fullorðinsárin.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -