Hundurinn þurfti á björgun að halda.
Í fyrradag þurfti að kalla úr björgunarsveitina Báru á Djúpavogi vegna þess að smalahundur kom sér í sjálfheldu þegar hann var að smala. Kindur létu sig hverfa á meðan. Frá þessu greinir Austurfrétt.
„Það var auðvelt að komast að honum ofan frá. Við þurftum að síga 7-8 metra niður að honum og síðan 10 metra niður. Hann var rólegur allan tímann og feginn að komast í bakpokann,“ sagði Ingi Ragnarsson, formaður björgunarsveitarinnar, en atvikið átti sér stað í Hofsdal inn af Álftafirði.
Í frétt Austurfrétt er sagt frá að það komi fyrir að björgunarsveitir þurfi að bjarga kindum í sjálfheldu. „Það eru nokkur ár síðan við gerðum það síðast. En þetta er fín æfing, þótt þetta séu dýr,“ sagði Ingi í því samhengi.