Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Prófessor telur Fjarðarheiðargöng óskynsamlega framkvæmd: „Áhættan er mest á jarðlagamótunum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng fyrir austan gæti reynst flókið spil. Þessu heldur prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands. Segir hann að einfaldara væri að bora styttri göng til að hringtengja Austurland.

„Áhættan er mest á jarðlagamótunum, sem liggja frá norðri til suðurs. Áhættan eykst við hver mót og þar með eftir því sem göngin eru lengri,“ segir Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands en sagt er frá málinu á Austurfrétt.

Þorvaldur telur vegna þessa, óskynsamlegt að bora göng undir Fjarðarheiði og að skynsamlegra væri að bora þrenn göng með Mjóafjörð sem miðpunkt, til Seyðisfjarðar, Norðfjarðar og Héraðs.

„Það er sama áhætta fólgin í að bora frá Mjóafirði upp á Hérað og undir Fjarðarheiði, því þar er borað þvert á jarðlagamótin en leiðin er styttri og áhættan því minni,“ segir Þorvaldur.

Á Austurfrétt segir að prófessorinn sé vel kunnugur Austurlandi enda formaður stjórnar Breiðdalsseturs og hefur hann starfað talsvert á svæðinu. „Ef hægt er að tengja Austurland saman og tryggja umferð um það allan ársins hring er að mínu viti lítið sem hindrað getur framþróun þessa svæðis.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -