- Auglýsing -
Íris Björg Guðbjartsdóttir, Dalakona og sauðfjárbóndi á bænum Klúku á Ströndum bjó til texta við lag úr söngleiknum Hárinu. Lagið er um hrútinn hennar.
Skessuhorn segir frá því að um síðastliðna helgi fór fram Íslandsmeistaramót í hrútadómum á Sauðfjársetrinu á Ströndum og af því tilefni hafi Íris gert sér til gamans, texta um hrútinn sinn, Móra. Hér fyrir neðan má sjá Írisi syngja ljóðið og spila á gítar, lagið Frank Mills, úr söngleiknum Hárið.