Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, er hættur við að bjóða sig fram til þess að leiða lista Framsóknar í næstu borgarstjórnarkosningum. Tilkynning þess efnis birti hann á Twitter í dag.
Björgvin tilkynnti framboð sitt í byrjun febrúar og sóttist eftir 1.-2. sæti á lista Framsóknarflokksins í borginni. Í tilkynningu sinni segir hann að þrátt fyrir mikinn stuðnings innan flokksins, sé betra að hafa allt liðið á bakvið sig. „Þá er mikilvægt að hafa það í huga þegar maður er á leiðinni á útivöll þarf maður að hafa allt liðið á bakvið sig.“
Segir hann að vilji hjálpa þeim sem mun að endingu leiða Framsóknarflokkinn í borginni, með þessari ákvörðun sinni. „Þetta hefur verið sturlaður rússíbani.“
— Björgvin Páll Gústavsson (@BjoggiGustavs) March 1, 2022