Ómar Ragnarsson segir ekkert skrítið að hér sé oft kalt og umhleypingasamt, landið heitir kaldasta nafni í heimi.
Sumarið er senn á enda hér á norðurhveli jarðar en í ár hefur verðráttan ekki verið neitt til að hrópa húrra yfir hér á landi. Íslendingar hafa hópast til heitu landanna í von um D-vítamín í kroppinn og hafa sjálfsagt margir íhugað að flytja af landi brott, til landa sem bjóða upp á betra veður. Ómar Ragnarsson er ekki einn af þeim. Hann skrifaði færslu á bloggsíðu sína þar sem hann hlekkir við frétt Mbl.is um tíst netverja um sumarið sem aldrei kom. Ómar er ekki hissa á veðrinu því við búum jú í landi sem heitir Ísland.
„Landið okkar heitir kaldasta nafni í heimi, svo að hvað er verið að kvarta?
Vegna þess að dýpsta lægðin að meðaltali á jörðinni er suðvestan við Ísland í janúar er landið auðvitað með mestu umhleypfingana og mesta meðalvindinn sem þekkist á hnettinum á þeim árstíma,“ skrifar Ómar í byrjun færslu sinnar. Í seinni helmingi færslunnar bendir hann á nokkra ljósa punkta varðandi Ísland.
„Er þá enginn ljós blettur á þessu? Jú, jú, og meira að segja nokkrir. Meðalhiti í janúar er svipaður og í New York í Bandaríkjunum eða í Ankara í Tyrklandi. Sumarmánuðirnir eru ekkert hlýrri í Færeyjum en hér, þótt Færeyjar liggi mun sunnar. En sumarmánuðirnir eru bjartari hér en í Færeyjum.“