Þriðjudagur 30. apríl, 2024
1.5 C
Reykjavik

Lögreglan leitar að ökumanni sem keyrði á gangandi vegfaranda og keyrði svo í burtu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á gangandi vegfaranda á gatnamótum Hrafnsgötu og Burknagötu í Reykjavík, neðan við Landspítalann á Hringbraut, í gærmorgun, fimmtudaginn 16. febrúar, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 8.29. Fyrrnefndur ökumaður nam staðar á vettvangi og átti orðaskipti við vegfarandann, en ók síðan á brott án þess að skeyta frekar um afdrif hans, en vegfarandinn reyndist töluvert slasaður.

Lögreglan segir í tilkynningu að við atvik eins og þetta sé mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Biður lögreglan í tilkynningunni umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]

Meðfylgjandi er mynd frá vettvangi, en tekið skal fram að bifreiðin á gatnamótunum er með öllu ótengd slysinu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -