- Auglýsing -
Elísabet Jökulsdóttir er orðin langamma og er í „hamingjukasti“ vegna þess.
Rithöfundurinn og ljóðskáldið elskaða, Elísabet Jökulsdóttir deildi með heiminum yndislegar fréttir á Facebook-síðu sinni fyrir stundu. Ömmubarn Elísabetar, Gabríel Brim, eignaðist dóttur, sem þýðir að Elísabet er orðin langamma.
„Ég er orðin laaaaaaaaaaaangammmmmmmmmmmmmma, langamma Elísabet, í gær fæddist þessi litla stúlka, dóttir Gabríels Brim, undurfögur og ævintýragjörn. 50 sm og 3.9 kg. Alveg tilbúin og fullkomin. Ég er búin að vera í geðshræringu og hamingjukasti.“
Mannlíf óskar Elísabetu innilega til hamingju með barnið, sem og foreldrunum!