Grétar Þórðarson, fyrrverandi skipstjóri og stýrimaður á Ísafirði, lést í gær, 20. maí. 84 ára að aldri. Sonur hans tilkynnti um andlát hans á Facebook.
„Faðir minn Grétar Þórðarsson kvaddi í morgun, 20 maí, 84 ára að aldri. Hann var sáttur við sitt líf,“ segir í tilkynningu Hjartar, sonar hans.
Eiginkona Grétars var Katrín Bjarney Jónsdóttir fædd 23. apríl 1941. Hún lést 30. apríl 2019. Þau eignuðust tvo syni.
Grétar bjó og starfaði á Ísafirði. Hannn var lengi stýrimaður og skipstjóri á Guðbjarti ÍS með Herði Guðbjartssyni sem lést fyrr á þessu ári. Hann þótti farsæll skipstjórnarmaður. Hann starfaði sem forstöðumaður á Hlíf áður en hann settist ðí helgan stein.
Um árabil var Grétar gjaldkeri Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar og annaðist það starf af alúð og samviskusemi.