Sunnudagur 28. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Bílaleigur í dvala með tugþúsundir bíla

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Því miður er það svo að Íslendinganir eiga ekki eftir að hjálpa okkur mikið. Langstærstur hluti veltunnar er farinn, það er bara þannig og því miður eiga ferðalögin innanlands ekki eftir að hjálpa okkur nokkurn skapaðan hlut,“ segir Axel Gómez, framkvæmdastjóri Avis-bílaleigunnar.

„Nú hefst barátta bílaleiganna upp á líf og dauða.“

Á meðan innlendir ferðaþjónustuaðilar vonast margir til þess að ferðalög Íslendinga innanlands í sumar komi til með að fleyta þeim í gegnum þá erfiðleika sem við blasa, þá er ljóst að það mun ekki bjarga íslensku bílaleigunum. Þær þurfa nauðsynlega á ferðamönnunum að halda og í þeirra augum er sumarið ónýtt. Bílaleigurnar reyna nú hvað þær geta til að minnka bílaflotann þeirra með því að selja bíla en í fyrra voru skráðir tæplega 22 þúsund bílaleigubílar á landinu. Bílaleigurnar koma síðan til með að leggjast í híði fram á næsta sumar.

Margir verða glaðir

Sigfús Bjarni Sigfússon, forstjóri Hertz á Íslandi, segir ljóst að bílaleigurnar komi til með að vera í dvala þar til erlendir ferðamenn snúi aftur til landsins. Hann segir það hjálpa fyrirtækinu aðeins hversu öflugt það er á fyrirtækja- og langtímaleigumarkaði og að nú virðist fleiri Íslendingar vera á landinu en venjulega sökum COVID-19 faraldursins. „Ásókn í langtímaleigu hefur aukist undanfarið vegna þessa ástands því nú eru margir á Íslandi sem annars væru erlendis vegna viðskipta til dæmis eða eru búsettir annars staðar en komu heim í faraldrinum. Margt af því fólki á ekki bíl hér á landi,“ segir Sigfús Bjarni.

Axel Gómez, hjá Avis, bendir á að meginhluti veltunnar hjá bílaleigunum komi inn á sumarmánuðunum fjórum. Hann segir bílaleigurnar reyna hvað þær geta til að bjóða tilboð í samstarfi við hótelin en ljóst sé að þær verði að mestu í dvala fram á næsta ár. „Við erum bara í dvala og vonum að næsta ár verði hagstætt. Nú liggja tugþúsundir bíla á planinu. Við erum auðvitað að vona að það komi einhver útlendingur síðla sumars, þó ekki væri nema smávegis.“

Alex Gomez, framkvæmdastjóri Avis

Upp á líf og dauða

- Auglýsing -

Sigfús Bjarni viðurkennir að það sé auðvitað gott að fá eitthvað í kassann með langtímaleigum en er á því að ferðalög Íslendinga innanlands komi ekki til með að bjarga málunum. „Leiga til Íslendinga og langtímaleigan eru eru samt engin stórviðskipti sem koma til með að bæta okkur. „Leiga til Íslendinga og langtímaleigan eru samt engin stórviðskipti sem koma til með að bæta okkur upp túristaleiguna enda verðin lág. Það er túristinn sem er uppistaðan í þessu öllu saman og staðan er því ekkert sérstök. Það verða margir glaðir þegar ferðamennirnir koma aftur. Fyrirtækin sem treysta á landann í sumar eru að selja vöruna á miklu lægra verði en þau raunverulega þurfa að fá. Það er bara verið að reyna að fá eitthvað inn. Venjulega erum við á þessum tímapunkti farnir með allt í gang en það er ekkert að fara í gang í sumar og því stór bílafloti sem stendur kyrr,“ segir Sigfús Bjarni.

Axel tekur í sama streng. „Því miður er þetta staðan í sumar og hún er heldur ekkert björt fyrir til dæmis hótelin því það kostar mikið fyrir þau að hafa opið hjá sér en þau fá lítinn pening inn í staðinn á þessum tilboðum til Íslendinga. Það mun taka tíma að ná þessu upp aftur og nú hefst barátta bílaleiganna upp á líf og dauða.“

Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -