Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Ljósið gefur til baka til samfélagsins með kærleik í hverri lykkju

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ljósið gefur til baka til samfélagsins með framlagi í verkefnið Kærleikur í hverri lykkju.

 

Minningarsjóður Einars Darra, Eitt líf,  stendur fyrir vitundarvakningu og forvarnarfræðslu með það að markmiði að sporna við og draga úr misnotkun ávana- og fíkniefna, sér í lagi meðal ungmenna. Eitt af verkefnum sjóðsins er Kærleikur í hverri lykkju og felur það í sér að prjóna kærleiksgjafir sem gefnar verða inn á meðferðarheimili.

Sjá einnig: Bára stofnar Kærleikur í hverri lykkju – Þú getur verið með

Ljósið leggur sitt af mörkum í þetta þarfa verkefni. Góðir aðilar gefa garn og eru allir þeir sem sækja prjónahóp Ljóssins hvattir til þess að leggja þessu mikilvæga málefni lið með handverki og hjálpa þannig Ljósinu að gefa til baka til samfélagsins.

Prjónahópur Ljóssins fer fram á föstudögum klukkan 10-14.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -