Age Hareide, nýr landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, var spurður út í mál Gylfa Þórs Sigurðssonnar og mögulega endurkomu hans í íslenska landsliðið í viðtali við norska fjölmiðla.
Þetta kom fyrst fram á dv.is.
Örlögin höguðu því að Hareide var ráðinn landsliðsþjálfari fyrir helgi; sama dag og Gylfi Þór var laus allra mála.
Norska blaðið Dagbladet spurði Hareide hvort hann hafi pælt í því hvernig hann ætli að snúa sér varðandi Gylfa Þór.

Ljósmynd: Светлана Бекетова
„Ég hef ekki gert það eins og er. Hann hefur ekki spilað lengi. Hann var mögulega besti leikmaður sem Ísland átti en endaði í hræðilegri stöðu. Vonandi reimar hann aftur á sig takkaskóna. Öll lið gætu nýtt sér hæfileika hans. Ég veit mjög lítið um málið svo ég vil skoða það nánar áður en ég tjái mig frekar.“
Hareide var líka spurður út í möguleika Íslands í undankeppninni.
„Ég tel okkur eiga fína möguleika. Við erum að berjast við Slóvakíu og Bosníu. Þetta snýst um leikina gegn þeim. Portúgal er líklegast en kannski getum við strítt þeim á Íslandi. Ég hef þjálfað nokkra Íslendinga. Þeir leggja hart að sér og eru með gott hugarfar. Ég veit að þeir hafa það sem þarf til að ná langt á stóra sviðinu.“