Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöld barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um þjófnað á fatnaði. Hafði gerandi farið inn í fjölbýlishús og stolið þar fatnaði úr sameiginlegu þvottahúsi hússins. Lögreglu tókst ekki að hafa hendur í hári þjófarins og er hans leitað.
Lögregla stöðvaði þrjá ökumenn í gærkvöldi og nótt en voru þeir grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Blóðsýnataka var tekin hjá öllum aðilum og voru þeir lausir að henni lokinni.
Ekið var á barn á rafmagnshlaupahjóli rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi, mildi var að engin meiðsli urðu.
Fyrr um kvöldið var tilkynnt um annan árekstur í Kópavogi. Engin meiðsli urðu á fólki en var ökumaður færður í fangaklefa vegna gruns að hafa ekið undir áhrifum áfengis.