- Auglýsing -
„Við hjónin hugsum hlýtt til Norðfirðinga eftir snjóflóðin sem féllu í nótt,“ skrifar forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og bætir við:
„Margt fólk hefur þurft að yfirgefa heimili sín í öryggisskyni og björgunarsveitir sinna mikilvægum störfum, auk annarra á vettvangi. Einnig er verið að rýma hús á Seyðisfirði og hætt er við snjóflóðum á öllum Austfjörðum.“
Guðni segir að „enn erum við minnt á að við búum í nánd við náttúruöfl sem geta verið óblíð. Ég ítreka góðar kveðjur og þakkir til allra sem sinna nú hjálp í viðlögum.“