Á miðvikudag handtók lögreglan á Norðurlandi eystra karl og konu vegna gruns um sölu fíkniefna.
Fólkið er einnig grunað um peningaþvætti og brot á barnaverndarlögum, en rannsókn málsins er á frumstigi. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Fundu fíkniefnin og tæki til ræktunar
Var hinn handtekni stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var hann að koma frá konunni sem var einnig handtekin. Var gerð húsleit á heimilinu þar sem fundust fíkniefni og einnig var gerð húsleit í fyrirtæki sem er í eigu mannsins á Akureyri. Þar fundust einnig fíkniefni og tæki til ræktunar.
Einnig grunuð um peningaþvætti og brot gegn barnaverndarlögum
Bergur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir fólkið hafa verið yfirheyrt en ekki sett í gæsluvarðhald. „Grunur leikur á að kannabisefnin hafi verið ætluð til sölu. Samhliða því fer því fram rannsókn á meintu peningaþvætti vegna brotastarfsemi, sem og broti gegn barnaverndarlögum,“ segir Bergur.