„Við erum fólk sem getur horfst í augu við niðurstöðu úr svona rannsókn þegar hún á endanum kemur, og hún gerir það; við trúum því að þetta verði rannsakað,“ segja hjónin Hlédís Sveinsdóttir arkitekt og Gunnar Árnason viðskiptafræðingur í ítarlegu viðtali við Mannlíf sem dreift verður ókeypis í Bónus, Hagkaup og N1, síðdegis í dag.
Hjónin segja að fósturvísar þeirra hafi horfið án þess að skýringar fengjust.
„Það eru einhverjar líkur á að okkur geti skjátlast, en eins og þetta horfir við okkur í dag þá eru yfirgnæfandi líkur á því að við höfum rétt fyrir okkur, en við þurfum eins og aðrir að bíða eftir því að fá niðurstöður úr óvéfengjanlegri rannsókn, sem er DNA-rannsókn.“
Podcast-viðtal við hjónin birtist klukkan 20 í kvöld.