Föstudagur 26. apríl, 2024
2.6 C
Reykjavik

30 veitingastaðir í Reykjavík hafa lokað vegna COVID-19

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þrjátíu veitingastaðir í miðbæ Reykjavíkur og nágrenni hafa lokað vegna kórónuveirufaraldursins, ástæðan er ýmist gjaldþrot eða óvissa vegna áhrifa veirunnar.

Kemur þetta fram í samantekt Jakobs Einars Jakobssonar veitingamanns á Jómfrúnni við Lækjargötu og stjórnarmanns í Samtökum ferðaþjónustunnar í ViðskiptaMogganum í dag.

„Veit­ing­a­rekst­ur er í raun ósjálf­bær sem sak­ir standa. Sum tómu rýmanna eru þó að fyll­ast á ný og nýir rekstr­araðilar komn­ir þar að. Bjart­sýni er að aukast á ný,“ seg­ir Jakob.

Á meðal veitingastaðanna 30 eru margir rótgrónir veitingastaðir eins og Grillið, Hressó og Lækjarbrekka.

Veitingastaðirnir 30 eru:

1. Lækjarbrekka, Bankastræti 2

- Auglýsing -

2. Jamie Oliver, Pósthússtræti 11

3. Karolina, Pósthússtræti 9

4. Marina á Icelandair hótel, Mýrargötu 14-16

- Auglýsing -

5. Geiri Smart á Icelandair hótel, Hverfisgötu 30

6. Icelandic Streetfood (Alls þrír staðir, einhverjir hafa opnað aftur), Lækjargötu 8

7. Icelandic deli, Lækjargötu 4

8. Hressó, Austurstræti 20

9. Burro, Veltusundi 1

10. Pablo, Veltusundi 1

11. Bergsson, Templarasundi 3

12. Messinn (Lækjargata og Grandi), Grandagarði 8

13. Bryggjan brugghús (Barion bryggjan búin að opna á sama stað), Grandagarði 8

14. Café Paris (Duck and Rose búið að opna á sama stað), Austurstræti 14

15. Fiskmarkaðurinn, Aðalstræti 12

16. Sæmundur í spari á Kex hostel, Skúlagötu 28

17. Skólabrú, Pósthússtræti 17

18. Gandhi (Flytur annað), Pósthússtræti 17

19. Downtown Café, Laugavegi 51

20. Kaffihúsið í Máli og menningu, Laugavegi 18

21. Harry’s (opna í dag að nýju), Laugavegi 84

22. Old Iceland, Laugavegi 72

23. Geysir Bistro Laugavegi, Laugavegi 96

24. Osteria Emiliana Lasagna, Hlemmi mathöll

25. Eldsmiðjan Laugavegi, Laugavegi 81

26. Gummi Ben, Tryggvagötu 22

27. Grillið, Hagatorgi 1

28. Fish and Chips, Tryggvagötu 11

29. Dill (Aðeins opið einn dag í viku), Laugavegi 59

30. Hard Rock (einungis opið á kvöldin), Lækjargötu 2a

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -