- Auglýsing -
Agnieszka Ewa Ziółkowska – kjörinn varaformaður Eflingar – segir á Facebook að „Sólveig Anna hefur einhliða ákveðið að gjörsamlega hunsa vilja næstum 500 félagsmanna sem kröfðust þess að félagsfundur verði haldinn föstudaginn 22. apríl.“
Og bætir við:
„Þess í stað hefur hún boðað til stjórnarfundar sunnudaginn 24. apríl til að ákveða dagsetningu fyrir félagsfundinn. Þess má geta að til að krefjast félagsfundar þarf að fá 300 undirskriftir félagsmanna en formaður fékk afhentar næstum 500 undirskriftir frá félagsmönnum Eflingar.“
Agnieszka segir ennfremur að „þegar litið er til þess að síðastliðna mánuði hefur Sólveig Anna farið mikinn í fjölmiðlum og verið tíðrætt um lýðræði, þá verður þetta að teljast ámælisvert, að fara ekki að vilja félagsmanna eða eftir lögum félagsins. Hér sýnir hún enn og aftur einræðistilburði. Ég fordæmi framferði formanns í þessu máli og krefst þess að hún haldi félagsfundinn 22. apríl, líkt og þessir félagsmenn fóru fram á.“