Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði kaup föður síns í hlut Íslandsbanka, hafa komið sér á óvart.
Greindi Vísir frá því að Bjarni hafi beðið fjölskyldu sína í fyrra útboði á hlut ríkisins í bankanum, að það keypti ekki hluti, en fór það útboð fram í fyrra. Með tilliti til þess hafi kaupin komið honum verulega á óvart.
„Ég tók sjálfur ekki þátt þá eins fram hefur komið og mæltist með því að aðrir í fjölskyldunni gerðu það líka. Það hvarflaði ekki að mér að það myndi gerast í þetta skiptið,“ sagði Bjarni.
Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna, keypti fyrir samtals 55 milljónir króna í gegnum félagið Hafsilfur ehf. Þá má ætla að Bjarni hafi rætt við föður sinn vegna málsins en aðspurður hvort hann hafi rætt við pabba svaraði Bjarni einfaldlega: „Hvað heldur þú.“