Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Bjarni tjáir sig um mál Þorvaldar – segist ekki hafa verið hafður með í ráðum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bjarni Benediktsson, fjármála – og efnahagsráðherra, hefur tjáð sig um mál Þorvaldar Gylfasonar, hagfræðiprófessors við Háskóla Íslands, í færslu á Facebook. En eins og fram hefur komið fékk Þorvaldur ekki starf ritstjóra norræna fræðiritsins Nordic Economic Policy Review, sem honum bauðst, vegna afskipta fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Segist Bjarni ekki hafa verið hafður með í ráðum í málinu.

„Af þessu tilefni minni ég á að starfsmenn ráðuneyta starfa í umboði og á ábyrgð ráðherra. Þótt ekki séu öll samskipti borin undir mig ber ég á þeim ábyrgð og í þessu tilviki endurspeglast vilji minn um að tilnefna hvorki né samþykkja Þorvald Gylfason til þessara starfa. Reyndar hafði mér aldrei dottið í hug sá möguleiki og enginn nefnt hann við mig,“ segir Bjarni í færslunni og nefnir að Þorvaldur hafi verið afar gagnrýninn á ríkisstjórnir þær er Bjarni hefur komið að.

Sjálfsagt að mæta fyrir þingnefnd

Telur ráðherra ekki eftir sér að mæta fyrir þingnefnd og fara yfir málið. „Það er meira en sjálfsagt að mæta fyrir þingnefnd og rekja þessi sjónarmið nánar. Þá gefst mögulega tækifæri til að fara nánar ofan í saumana á því hvers vegna ég tel Þorvald Gylfason tæplega eiga samleið með mínu ráðuneyti í þessu verkefni eða yfirhöfuð um önnur stefnumarkandi mál. Það verður þá í fyrsta sinn sem ég ræði um mögulegt samstarf við Þorvald Gylfason en ekki þarf að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að finna út hvaða hug Þorvaldur hefur borið til þeirra ríkisstjórna sem ég hef setið í undanfarin ár. Ef þörf krefur skal farið betur yfir það fyrir þingnefnd.“

Bjarni segir reyndar vera svo að þegar hann hafi heyrt af þeirri uppástungu hafi hann verið afar skýr um að Þorvaldur kæmi ekki til greina. „Reyndar er það svo að þegar ég heyrði af þeirri uppástungu var ég afar skýr um að hann kæmi ekki til greina, enda tel ég að sýn og áherslur Þorvaldar Gylfasonar í efnahagsmálum geti engan veginn stutt við stefnumótun ráðuneytis sem ég stýri.“

Hægt er að lesa færslu Bjarna hér að neðan.

- Auglýsing -

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -